Um bókina
24 stunda bókin
Bók daglegra hugleiðinga: ein síða fyrir hvern dag ársins. Hver síða geymir þrennt — AA-hugleiðingu, íhugun og bæn — og er ætluð einum degi í einu, næstu tuttugu og fjórum stundum.
Uppruni bókarinnar
Bókin heitir á frummálinu Twenty-Four Hours a Day. Höfundur hennar var Richmond Walker (1892–1965), bandarískur AA-maður sem varð edrú árið 1942. Hann tók saman hugleiðingar, íhuganir og bænir fyrir hvern dag ársins og gaf þær sjálfur út í Daytona Beach í Flórída árið 1948. Bókin spurðist út meðal AA-félaga og seldist í nærri 5.000 eintökum fyrsta árið.
Þegar aðalþjónustunefnd AA-samtakanna sýndi útgáfunni ekki áhuga tók Hazelden-stofnunin í Minnesota við henni árið 1954. Síðan hefur bókin selst í meira en tíu milljónum eintaka víða um heim. Hún er ekki opinbert lesefni AA-samtakanna en hefur fylgt fólki í bata í meira en sjötíu ár.