Dagleg hugleiðing · 309. dagur ársins

5. nóvember

AA-hugleiðing dagsins

Þegar öllum verður hugsað til launanna sem okkur hafa hlotnast vegna nýrra lífshátta, blasa við ný og betri heimili, endurnýjað samband við maka okkar og börn. Ennfremur friður, fullnægja, trú, von, kærleikur og nýr metnaður. Hverju höfum við svo glatað? Því getur sérhver svarað á ýmsa vegu. Ótti minn er að mestu horfinn. Hann var húsbóndi minn og stjórnaði mér. Hann launaði framtak mitt. Hann dró alltaf úr mér bakfiskinn og gerði mig innhverfan og einmana. Þegar trúin tók sæti óttans batnaði mér. Er ótti minn á undanhaldi?

Íhugun dagsins

Heimurinn myndi fyrr en ella nálgast Guð, vilji hans á jörðu fyrr ná fram að ganga, ef allir sem viðurkenna hann, leggðu sig skilyrðislaust fram um það að verða verkfæri í hendi hans. Guð getur notað sérhvert mannsbarn sem farveg himnesks kærleika og máttar. Hlédrægni fylgismanna Guðs hindrar það, að heimurinn nálgist Guð. Ef sérhver þeirra lifði dag hvern fyrir Guð og leyfði Guði að starfa í gegnum sig, myndi heimurinn brátt færast miklu nær Guði, skapara sínum og verndara.

Bæn dagsins

Ég bið að ég verði nýttur sem farvegur fyrir velþóknun Drottins. Ég bið að ég lifi þannig, að ég stuðli að því að andi Guðs nálgist heiminn.

Nýr dagurDagur valinn af handahófi

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.