Dagleg hugleiðing · 312. dagur ársins

8. nóvember

AA-hugsun dagsins

Mikið af minnimáttarkennd minni er horfið. Ég var alltaf að flýja frá lífinu. Ég vildi ekki horfast í augu við raunveruleikann. Ég var gagntekinn sjálfsmeðaumkun. Ég vorkenndi sjálfum mér stöðugt. Ég reyndi að forðast alla ábyrgð. Mér fannst að ábyrgðin af fjölskyldu minni og vinnu væri mér ofviða. Vegna minnimáttarkenndar minnar, vildi ég vera laus við alla ábyrgð. Ég vildi láta reka á reiðanum; mig langaði að vera „á bísanum“. AA kenndi mér að sigrast á minnimáttarkenndinni. Þar fékk ég vilja til að axla ábyrgð að nýju. Er ég laus við minnimáttarkenndina?

Íhugun dagsins

„En eitt gjöri ég. Ég gleymi því, sem að baki er, en seilist eftir því, sem framundan er, og keppi þannig að markinu“. Við ættum að gleyma því, sem að baki er, og keppa fram á við til einhvers betra. Við megum vita það, að Guð hefur fyrirgefið okkur allar fyrri syndir, svo fremi sem við gerum heiðarlega tilraun til þess að lifa í dag á þann veg, sem við höldum að Guði sé þóknanlegt. Við getum hreinsað spjöld fortíðarinnar. Við getum hafið daginn í dag með hreinan skjöld og stefnt áfram í fullu trausti að því marki, sem okkur hefur verið sett.

Bæn dagsins

Ég bið að ég varpi af mér oki fortíðarinnar. Ég bið að ég hefjist handa í dag með glöðu geði og nýju öryggi.

Nýr dagurDagur valinn af handahófi

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.