Dagleg hugleiðing · 313. dagur ársins

9. nóvember

AA-hugleiðing dagsins

Ég hef lært að vera síður neikvæður en jákvæður. Ég var vanur að líta neikvæðum augum á flesta hluti. Að mínu áliti beittu flestir blekkingum. Ég sá fátt gott í heiminum, en því meira af hræsni og yfirdrepsskap. Mönnum var ekki treystandi. Ég trúði að þeir myndu „snúa á “ mig, ef þeir gætu. Allir sem sóttu kirkju, voru hræsnarar meira eða minna. Ég þurfti að taka allt „með fyrirvara“ fannst mér. Þetta var almenn afstaða mín til lífsins. Nú er ég jákvæðari. Ég trúi á mennina og getu þeirra. Það er mikið um kærleika, sannleika og hreinskilni í heiminum. Ég reyni að gera ekki lítið úr mönnum. Nú virðist lífið einhvers virði og það er gott að lifa. Er ég hættur að vera neikvæður og orðinn jákvæður?

Íhugun dagsins

Hugsaðu um Guð eins og einlægan vin og reyndu að nýta þér dásemdir þeirrar vináttu. Guð verður vinur þinn eins og þú ert vinur hans þegar þú tengist honum, um leið og þú auðsýnir tilbeiðslu, hlýðni og hollustu. Þú finnur að hann og þú vinnið saman. Hann getur gert sitthvað fyrir þig og þú fyrir hann. Bænir þínar verða þér raunverulegri, ef þú hefur á tilfinningunni að Guð reiði sig á vináttu þína og að þú treystir á hans.

Bæn dagsins

Ég bið að ég hugsi um Guð sem vin minn. Ég bið að ég finni að ég sé að vinna fyrir hann og með honum.

Nýr dagurDagur valinn af handahófi

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.