AA-hugleiðing dagsins
AA-leiðin er vegur allsgáðs lífs. AA-stefnan er alþekkt sem árangursrík aðferð gegn alkóhólisma. Læknar, sálfræðingar og prestar hafa náð nokkrum árangri. Nokkrir hafa látið renna af sér á eigin spýtur. Við trúum því að AA sé árangursríkasta og ánægjulegasta leiðin til allsgáðs lífs. Samt er AA-stefnan auðvitað ekki alltaf óskeikul til árangurs. Sumir geta ekki náð tökum á allsgáðu lífi og aðrir falla aftur í drykkjuskap eftir að hafa verið allsgáðir um tíma. Er ég innilega þakklátur fyrir að hafa fundið AA?
Íhugun dagsins
Þakklæti til Guðs er aðalstef uppskeruhátíðarinnar. „Landnemarnir“ héldu samkomu til þess að flytja Guði þakkir fyrir uppskeru sína, sem var hryggilega lítil. Hvernig getum við komist hjá því að vera Guði þakklát, þegar okkur verður litið umhverfis okkur á allt, sem við njótum í dag. Fjölskylda okkar, heimili og nánir vinir: Allt eru þetta gjafir Guðs. „Ef ekki væri fyrir Guðs náð“ myndum við ekki njóta þeirra.
Bæn dagsins
Ég bið að ég verði innilega þakklátur í dag. Ég bið að ég gleymi ekki hvernig högum mínum væri komið ef ekki væri fyrir Guðs náð.