AA-hugleiðing dagsins
Ég hef losnað við mikið af innri árekstrum. Ég var alltaf í stríði við sjálfan mig. Ég var að gera það sem mig langaði ekki til. Ég var að vakna á framandi stöðum og vissi ekki hvernig ég hafði komist þangað. Ég var kærulaus þegar ég var drukkinn og fullur iðrunar þegar ég var ódrukkinn. Það var ekkert vit í lífi mínu. Það var alsett góðum ásetningi sem ekki var staðið við og sviknum vonum og áætlunum. Ég var á hraðri leið í hundana. Það var ekki að furða þótt taugakerfið væri að þrotum komið. Ég var orðinn ringlaður af að berja höfðinu við steininn. AA kenndi mér að koma lífi mínu á réttan kjöl og hætta að berjast við sjálfan mig. Hef ég losað mig við innri átök?
Íhugun dagsins
„Hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni, þar er ég mitt á meðal þeirra“. Andi Guðs kemur yfir söfnuð hans þegar hann kemur einhuga á fund, í einu augnamiði. Þegar tvær eða þrjár trúaðar sálir eru saman komnar á fundarstað, er andi Guðs þar líka til hjálpar og leiðsagnar. Hvar sem einlægir menn hópast saman, og leita hjálpar Guðs í alvöru, þar er máttur Guðs og andi einnig þeim til uppörvunar og innblásturs.
Bæn dagsins
Ég bið að ég sé samhuga félögum í deildinni minni. Ég bið að ég finni styrkinn frá einhuga deild.