AA-hugleiðing dagsins
Hugrenningar sem eru undanfari bakfalls virðast ómeðvitaðar að hluta. Þó er líklegt að einhver hluti þeirra síist inn í meðvitundina. Hugdettu tengdri drykkjuskap skýtur upp í kollinum á okkur. Þetta er augnablikið sem skiptir sköpum. Ætla ég að ala þessa hugsun með mér andartaki lengur eða ætla ég að úthýsa henni strax? Ef ég leyfi henni að staldra við verða kannski úr henni hugarórar. Kannski fer ég að sjá fyrir mér glas af ísköldum bjór eða staup af vínblöndu. Ef ég leyfi þessum órum að festa rætur í huga mér leiða þeir kannski til ákvörðunar, þótt hún sé ómeðvituð, um að fá sér eitt staup. Þá er bakfallið á næsta leiti. Leyfi ég mér hugaróra?
Íhugun dagsins
Mörg okkar hafa nokkra hugmynd um það hverskonar manngerð Guð vill að við séum. Hvernig svo sem þessari hugmynd er farið, verðum við að vera henni trú og lifa í samræmi við hana. Við megum öll trúa því, að Guð hefur hugsjón um það hvernig hann vill að við séum. Hið góða sem Guð sér í okkur, það sem við gætum verið og Guð myndi vilja að við værum er til í hverjum manni. En margur getur ekki uppfyllt það, sem til er ætlast af honum og vonbrigði Guðs hljóta að vera mikil.
Bæn dagsins
Ég bið að ég reyni að verða sá, sem Guð vill að ég verði. Ég bið, að ég reyni að ná því að líkjast þeirri mynd sem Guð væntir.