AA-hugleiðing dagsins
Fyrst ég nýt forréttindanna af að vera í samtökunum, mun ég taka þátt í að bera ábyrgðina, bera minn hluta byrðanna, með glöðu geði. Ég er innilega þakklátur fyrir þau forréttindi sem ég nýt af því að ég er félagi í þessum stórfenglegu samtökum. Þau leggja mér skyldur á herðar, sem ég mun ekki skjóta mér undan. Ég skal bera minn hluta með gleði. Það verður svo gaman, að þetta verða ekki lengur kvaðir heldur tækifæri. Ætla ég að taka hverju tækifæri fegins hendi?
Íhugun dagsins
Vinna og bæn eru tvö öfl, sem gera heiminn smám saman að betri stað. Við verðum að vinna að því að bæta sjálf okkur og aðra. Trú án athafna er líflaus. En öll vinna með öðrum ætti að byggjast á bæn. Ef við biðjum stuttrar bænar áður en við tökum til máls eða reynum að hjálpa, verðum við hæfari til þess. Bænin er aflið að baki verkanna. Bænin er byggð á þeirri trú að Guð vinni með okkur og gegnum okkur. Við megum trúa því, að ekkert er ómögulegt í mannlegum samskiptum ef við treystum á hjálp Guðs.
Bæn dagsins
Ég bið að líf mitt sé í jafnvægi milli bænar og starfs. Ég bið að ég vinni ekki án bænar og biðji ekki án verka.