Dagleg hugleiðing · 337. dagur ársins

3. desember

AA-hugleiðing dagsins

Einhver alkóhólísk hugsun, meðvituð eða ómeðvituð, er undanfari hvers bakfalls. Við verðum að vera á varðbergi gegn slíkum hugsunum ævilangt. AA-þjálfun okkar er reyndar aðallega til þess ætluð að undirbúa okkur, svo að við getum þegar borið kennsl á þessar hugsanir og hafnað þeim á augabragði. Bakfallið verður þegar við leyfum svona hugsunum búsetu í huga okkar, jafnvel áður en við hreyfum hendi til að lyfta glasinu að vörum okkar. AA-aðferðin felst aðallega í geðrænni þjálfun. Hversu vel er hugur minn undirbúinn?

Íhugun dagsins

Brjóttu ekki heilann um ráðgátur sem þú getur ekki leyst. Vera kann að lausnirnar verði þér ekki birtar fyrr en eftir að þú ert allur. Ástvinamissir, misskipti lífsins gæða, hinir vansköpuðu og hinir lemstruðu, og margar aðrar ráðgátur færðu ef til vill ekkert um að vita fyrr en þú ert horfinn héðan. „Enn hefi ég margt að segja yður, en þér getið ekki borið það nú“. Aðeins skref fyrir skref, stig af stigi getur þú haldið áfram för þinni til meiri þekkingar og skilnings.

Bæn dagsins

Ég bið að ég verði ánægður með að það sem nú er í móðu verði einn góðan veðurdag skýrt. Ég bið að ég trúi því að einhvern tímann muni ég sjá það augliti til auglitis.

Nýr dagurDagur valinn af handahófi

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.