Dagleg hugleiðing · 362. dagur ársins

28. desember

AA-hugleiðing dagsins

AA-samtökin eru mannleg að uppbyggingu, en tilgangur þeirra er guðdómlegur. Tilgangurinn er að beina mér í áttina til Guðs og betra lífernis. Göngu minni hefur verið beint á rétta braut. Ég finn það í rótum hjarta míns. Ég er á réttri leið. Framtíðin er örugg í hendi Guðs. Hvað sem hún ber í skauti sér, getur ekkert orðið mér um megn. Ég hef æðri mátt með mér til að hjálpa mér gegnum hvað sem er. Stefni ég til Guðs og betri daga?

Íhugun dagsins

Þótt Guð sé ósýnilegur, er hann alltaf nálægur þeim sem trúa á hann og treysta honum og sækja til hans þann styrk sem þeir þurfa til að mæta erfiðleikum lífsins. Þótt æðri máttur sé hulinn mannlegum sjónum er hann ávallt til reiðu þegar við biðjum hann í auðmýkt. Tilfinningin að Guð sé með okkur ætti ekki að vera duttlungum háð, heldur ættum við að reyna að vera alltaf meðvituð um mátt hans og kærleika sem bakhjarl lífs okkar.

Bæn dagsins

Ég bið að ég finni að Guð er ekki of fjarlægur til að ég geti treyst á hjálp hans. Ég bið að ég sé öruggur um að hann sé fús að veita mér þann styrk sem ég þarf.

Nýr dagurDagur valinn af handahófi

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.