Dagleg hugleiðing · 351. dagur ársins

17. desember

AA-hugleiðing dagsins

Trúarleiðin er auðvitað ekki séreign AA-samtakanna. Hún er leið allra þeirra sem vilja lifa lífinu. En margir ganga gegnum lífið án þess að lifa því. Margir gera þetta sér til mikils ama. Umheimurinn er fullur vantrúar. Margir hafa misst trúna á nokkurn tilgang með tilverunni. Margir efast um að hann sé nokkur. Margir kæra sig kollótta. Margir eiga lífi sínu ekkert takmark. Þeir eru utanveltu þjóðfélagsins. Þeir eiga hvergi heima. En fyrir okkur AA-menn er trúarleiðin vegur lífsins. Við höfum sannað það með fyrra líferni að við getum ekki lifað lífinu án hennar. Held ég að ég geti lifað hamingjusamur án trúar?

Íhugun dagsins

„Hann lætur sól sína renna upp yfir vonda menn sem góða, og rigna yfir réttláta sem rangláta“. Guð gengur ekki í berhögg við gang náttúrulögmálanna. Náttúrulögmálin eru óbreytanleg, annars væri ekki hægt að reiða sig á þau. Hvað náttúrulögmálin varðar gerir Guð engan mun á góðum mönnum og illum. Sjúkdómar eða dauði geta herjað hvar sem er. En lögmálum andans ber einnig að hlýða. Það veltur á vali okkar milli góðs og ills hvort leið okkar liggur upp á við til sannrar velgengni og sigursæls lífs eða niður á við til tjóns og ósigurs.

Bæn dagsins

Ég bið að í dag velji ég leið hins andlega lífs. Ég bið að í dag lifi ég í trú, von og kærleika.

Nýr dagurDagur valinn af handahófi

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.