Dagleg hugleiðing · 360. dagur ársins

26. desember

AA-hugleiðing dagsins

Ég er feginn að ég er í AA-samtökunum, þessum stórkostlega félagsskap, sem nær um víða veröld. Ég er bara einn af fjölda AA-manna, en ég er einn í þeirra hópi. Ég er feginn að vera uppi nú á tímum, þegar ég get lagt útbreiðslu AA-samtakanna lið, þegar þau þurfa á mér að halda til að leggja hönd á plóginn við að halda starfseminni gangandi. Ég er feginn að ég get verið til gagns, að ég hef eitthvað til að lifa fyrir og markmið í lífinu. Ég vil fórna lífi mínu í þetta merka málefni og njóta þess þannig á ný. Er ég þakklátur fyrir að vera AA-félagi?

Íhugun dagsins

Þessar hugleiðingar geta kennt okkur að slaka á. Við getum komið öðrum að gagni þótt í smáu sé. Og verið glöð á meðan. Við skulum ekki hafa of miklar áhyggjur af þeim sem við getum ekkert hjálpað. Við getum lagt það í vana okkar að láta æðri mátt ráða árangri okkar. Við getum lifað lífinu þannig að við gerum okkar besta, án þess að finna til væntingar eða álags. Við getum notið alls hins góða og fagra í lífinu, en á sama tíma lagt allt okkar traust á Guð.

Bæn dagsins

Ég bið að ég helgi líf mitt þessu verðuga málefni. Ég bið að ég njóti ánægjunnar af góðu verki, vel unnu.

Nýr dagurDagur valinn af handahófi

Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við
það, sem ég fæ ekki breytt
kjark til að breyta því,
sem ég get breytt og vit
til að greina þar á milli.