AA-hugleiðing dagsins
Við höfum örugglega skilið draumaheiminn eftir. Hann var ekki annað en blekking. Við bjuggum þennan heim til sjálf og það var ekki heimur raunveruleikans. Vissulega erum við leið yfir fortíðinni, en við höfum lært mikið af henni. Hún er orðin reynsla, dýrmæt reynsla, eins og við nú sjáum hana, því að hún hefur gefið okkur þá þekkingu sem þarf til að horfast í augu við heiminn eins og hann er. Við urðum að verða alkóhólistar áður en við gátum fundið AA-stefnuna. Öðruvísi hefðum við ekki fundið hana. Á vissan hátt var það þess virði. Lít ég á fortíð mína sem dýrmæta reynslu?
Íhugun dagsins
Breiddu út frið en ekki sundurlyndi, hvar sem þú leggur leið þína. Reyndu alltaf að vera til góðs í hvívetna en ekki vandræða. Reyndu að leiða hið illa hjá þér heldur en leggja til atlögu við það. Reyndu alltaf að byggja upp, aldrei að rífa niður. Sýndu öðrum með fordæmi þínu að rétt líferni leiðir af sér hamingju. Fordæmi þitt er áhrifameira en það sem þú segir.
Bæn dagsins
Ég bið að ég reyni í dag að láta eitthvað gott af mér leiða, hvar sem ég fæ því við komið. Ég bið að ég verði uppbyggjandi í öllu, sem ég hugsa, segi og geri í dag.